Fara í efni

Bleikir hafrar með hindberjum og acai

Ég er eiginlega viss um að þessi morgunmatur mun verða þinn uppáhalds.
Bleikir hafrar með hindberjum og acai

Ég er eiginlega viss um að þessi morgunmatur mun verða þinn uppáhalds.

Dásamleg skál að bleikum höfrum.

Ef þú átt frosin hindber og acai þá er afskaplega einfalt að búa þennan hafragraut til. Skál af hafragraut sem þessum er stúftfull af vítamínum, trefjum og steinefnum.

Uppskrift er fyrir 2.

Hráefni:

2 bollar af möndlumjólk

2 bollar af frosnum hindberjum

2 epli, rifin

1 bolli hafrar

½ tsk vanillu duft

1-2 msk af maple sýrópi

4 tsk af acai

Má bæta við aukalega – kakó dufti og maqui dufti

Á toppinn: möndlusmjör, goji ber, hnetur, fræ, ber og dökk súkkulaði

Leiðbeiningar:

Setjið möndlumjólkina, hindber og rifin epli saman í pott og látið suðuna koma upp.

Bætið höfrum saman við og lækkið hitann. Hrærið vanillunni út í og látið malla þar til grautur er mjúkur.

Slökkvið á hitanum og bætið sýrópi og acai saman við.

Látið standa í fáeinar mínútur.

Setjið svo í 2 skálar og toppið með hollustu.

Njótið vel!