Fara í efni

Ást í hverjum bita: Heimagerðir hunangs- og hnetumolar með múslí og þurrkuðum berjum

Varla er nokkuð betra en heimagerðir morgunbitar, sem læða má í nestispokann eða grípa á leið út um dyrnar rétt áður en veðrið skellur á og umferðin gleypir vegfarendur.
Ást í hverjum bita: Heimagerðir hunangs- og hnetumolar með múslí og þurrkuðum berjum

Varla er nokkuð betra en heimagerðir morgunbitar, sem læða má í nestispokann eða grípa á leið út um dyrnar rétt áður en veðrið skellur á og umferðin gleypir vegfarendur. 

Í þessa uppskrift fara þurrkuð ber og morgunkorn að eigin vali, hellingur af ást og bráðhollt hnetusmjör sem er stútfullt af próteini og góðri fitu.

Dísæt og bráðholl freisting fyrir börn og fullorðna; dásamlegt heilsunasl í ræktina og enn betri viðbót í nestisboxið. Hvað er enda betra en heimatilbúið hollustusnakk í lok strangrar skóla- og vinnuviku sem eykur ekki bara orku heldur læðir brosi á litla (og stærri) munna!

I N N I H A L D S E F N I:

4 bollar (amerísk mælieining) Cheerios

1 bolli þurrkuð berjablanda (trönuber, bláber o.sv.frv.)

½ bolli hunangsristaðar hnetur

½ bolli agave hunang

½ bolli lífrænt hnetusmjör

 

L E I Ð B E I N I N G A R:

#1 – Smyrjið ágætt bökunarmót að innan og leggið til hliðar; formið er ekki ætlað til að baka bitana í ofninum – heldur til að leggja í ísskáp í u.þ.b. klukkustund, áður en blandan er skorin í bita.

#2 – Blandið saman Cheerios, þurrkuðum berjum og hnetum í stórri skál.

#3 – Hitið hunangið og hnetusmjörið í litlum potti, hrærið stöðugt í blöndunni þar til hún er orðin þétt, mjúk og rennileg. Ef blandan verður mjög heit í pottinum er ágætt að láta hana kólna í smávægilegan tíma og taka fram þegar hunangslagað hnetusmjörið er orðið volgt.

#4 – Hellið blöndunni því næst yfir Cheerios- og hnetu / berjablönduna í skálinni og hrærið öllu vel saman.

#5 – Hellið að lokum blöndunni í bökunarformið og látið standa inni í ísskáp í klukkutíma; takið svo út og skerið í litla og handhæga bita sem fara vel í nestisboxið.

 

Uppskrift af vef sykur.is

 

 

Uppskrift // Chew Out Loud