Fara í efni

Appelsínu gulrótar smoothie með perum og höfrum

Þessi er frábær í kuldanum.
Appelsínu gulrótar smoothie með perum og höfrum

Þessi er frábær í kuldanum.

Stútfullur af C-vítamíni, beta-carotene, kalki, járni og öðrum nauðsynlegum næringarefnum.

Hann fyllir vel í magann og því má þakka peru og höfrum.

Hráefni:

1 meðal stór gulrót – skorin smátt

1 appelsína – án hýðis og hreinsuð af steinum

1 pera – hreinsuð og án hýðis

¼ bolli af höfrum

240 ml af ósætri möndlumjólk

 

Leiðbeiningar:

Byrjið á að setja vökvann í blandarann. Svo fara ávextirnir og gulrótin.

Blandið á mesta hraða þar til drykkur er mjúkur.

Njótið vel!