Fara í efni

Skelfilegar afleiðingar Anorexiu

Hún er fórnarlamb þessa skelfilega sjúkdóms Anorexia nervosa. Nana Karagianni var einn ástsælasti blaðamaður í Grikklandi. Hún var eitt sinn módel og hafði nóg að gera sem slík. Hún snéri sér að blaðamennsku og einnig var hún kynnir í hinum ýmsu þáttum í Grísku sjónvarpi.
Heilbrigð og flott en þá átti eftir að breytast
Heilbrigð og flott en þá átti eftir að breytast

Hún er fórnarlamb þessa skelfilega sjúkdóms Anorexia nervosa.

Nana Karagianni var einn ástsælasti blaðamaður í Grikklandi. Hún var eitt sinn módel og hafði nóg að gera sem slík.

Hún snéri sér að blaðamennsku og einnig var hún kynnir í hinum ýmsu þáttum í Grísku sjónvarpi.

Að vera fræg og stöðugt undir vökulum augum almennings gerði það að verkum að Nana fór að hugsa of mikið um eigið útlit og aðalega þyngdina. Það er sagt að myndavélin bæti á kílóum þegar þú ert í útsendingu og hafði hún miklar áhyggjur af því. Hún setti sjálfa sig undir gríðarlega pressu.

b 

Ávallt í megrun og stöðugt að hugsa um útlit líkamans þá gekk hún of langt.

a 

Eftir áralanga baráttu við Anorexiu sem hún þróaði með sér eftir mikla megrunarkúra og æfingar til að vera grönn, þá er hún óþekkjanleg.

a 

Í dag vinnur hún í útvarpi og er að reyna að breyta sínum lífsstíl og berst af krafti við sinn illvíga sjúkdóm, Anorexiu. En meira að segja þó hún sé ekki lengur fyrir framan myndavélarnar eða undir vökulu auga áhorfandans þá er baráttan erfið.

a 

Þessar myndir af henni eru tiltölulega nýjar og það er hræðilegt að sjá hvað hún er búin að gera líkama sínum. Hún var gullfalleg ung kona í blóma lífsins og hafði allt til alls, nema næginlega mikið sjálfstraust. Í dag lítur hún út eins og beinagrind.

a  a 

En svona er þessi bölvaði sjúkdómur. Hann kemur aftan að þér og þegar hann hefur tekið yfir andlega þá er ekki aftur snúið. Allt of margar ungar konur og menn deyja ár hvert úr Anorexiu eða Bulimia.