Fara í efni

Herbert Svavar Arnarson tekin tali

Herbert Svavar Arnarson
Herbert Svavar Arnarson

Fullt nafn: Herbert Svavar Arnarson
Aldur: 43
Starf: Forstöðumaður hjá Lykli fjármögnun
Maki: Elín Björg Guðmundsdóttir

Hvað dettur þér fyrst í hug þegar þú heyrir orðið „járnkarl“ ?: Hrikalega erfiða íþróttakeppni þar sem maður þarf að synda fullt, hjóla langt og hlaupa endalaust.

Nefndu þrennt sem þú átt alltaf til í ísskápnum?: Mjólk, ávexti og Lýsi

Hvaða töfralausn trúir þú á? Trúi ekki á töfralausnir

Ef þú værir staddur/stödd á eyðieyju hvað myndir þú ekki vilja vera án?: Matar

Hver er þinn uppáhaldsmatur? Rétt elduð nautalund með tilheyrandi meðlæti

Hvort borðar þú brúnan eða hvítan sykur ? Bæði en hvíti er bara betri

Hvað æfir þú oft í viku ?: Þegar ég æfi þá æfi ég 5-6 sinnum í viku og svo tek ég því miður pásur. Ætli að meðaltalið sé ekki nálægt 2-3 í viku. 

Ef þú ætlar að „tríta“ þig sérlega vel hvað gerir þú ? Ég bara hef ekki hugmynd um það

Hvað er erfið æfing í þínum huga ? Undirbúningstímabilið hjá Kentucky Wesleyan College – það var svakalegt!

Hvað segir þú við sjálfan/sjálfa þig þegar þú þarft að takast á við stórt/erfitt verkefni ? Byrjum á þessu.

Þegar þú liggur andvaka, hvað hugsar þú um ? Er ég ekkert að fara að sofna?

Hvernig líta „kósífötin“ þín út ? Lululemon fötin mín er mest kósí. 

Þegar þú færð þér skyndibita hvað færð þú þér oftast ? KFC