Fara í efni

Konur, breytum heiminum saman

Konur, breytum heiminum saman

Á laugardaginn sameinast þúsundir kvenna um allt land og hlaupa sér til ánægju og heilsuauka í Kvennahlaupi ÍSÍ. Það er einstök gleði og bjartsýni sem fylgir því þegar kynslóðir kvenna – ömmur, mæður, dætur, systur, frænkur og vinkonur – sameinast á þessum skemmtilega degi.

Vísindarannsóknir síðustu áratuga hafa einmitt sýnt að hreyfing er ein grunnstoð heilsu og vellíðunar. Uppgötvanir í heilbrigðisvísindum skapa forsendur fyrir því að við getum bætt og lengt líf fólks. Meirihluta síðustu aldar var slagsíða í inntaki vísindarannsókna á karlbundna þætti heilsufars.  Sú staðreynd leiddi til dæmis til þess að kvenbundin einkenni og áhættuþættir hjartasjúkdóma voru illa skilgreindir og það sama gildir enn um fjölmarga sjúkdóma sem fremur hrjá konur. Það má einnig vera ljóst, ekki síst með tilkomu #metoo byltingar síðasta árs, að skuggahliðar tilveru kvenna eru kynbundið ofbeldi og önnur áföll sem þær upplifa, oft snemma á lífsleiðinni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur lýst því yfir að sennilega verði þriðjungur kvenna fyrir kynferðislegu eða líkamlegu ofbeldi á lífsleiðinni.  Þær fáu rannsóknir sem gerðar hafa verið hér á landi gefa til kynna að þetta sé einnig raunveruleikinn á Íslandi. Þá eru ótalin önnur áföll á borð við ástvinamissi, erfiða fæðingarreynslu, náttúruhamfarir, einelti, og skilnaði.

Þó rannsóknir séu tiltölulega skammt á veg komnar eru sterkar vísbendingar um að ofbeldi og önnur áföll geti haft veruleg áhrif á bæði sálræna og líkamlega heilsu kvenna. En betur má ef duga skal. Við þurfum vísindarannsóknir til þess að lyfta grettistaki í þekkingarsköpun og þar með forvörnum á þessu sviði.  Við þurfum að skilja betur hvernig koma má í veg fyrir áföll eins og ofbeldi og hvernig við komum í veg fyrir að þolendur áfalla missi heilsuna í kjölfar þeirra. Við þurfum sterka vísindalega þekkingu til að breyta heiminum.

Áfallasaga kvenna er vísindarannsókn á vegum Háskóla Íslands sem hefur það að markmiði að bæta verulega þekkingu á þessu sviði.  Nú á vormánuðum hefur staðið yfir þjóðarátak þar sem öllum konum, 18 ára og eldri, stendur til boða að taka þátt í rannsókninni með því að svara spurningalista á netinu. Þúsundir kvenna hafa nú þegar lagt okkur lið með þátttöku sinni og þannig lagt mikilvægt lóð á vogaskálarnar að bættri þekkingu fyrir komandi kynslóðir. Skráning í rannsóknina stendur enn yfir og við hvetjum allar konur, óháð fyrri sögu um áföll, að kynna sér málið á www.afallasaga.is eða staldra við upplýsingaefni og upplýsingabása okkar á Kvennahlaupsdaginn.

Með samstilltu átaki getum við konur breytt heiminum - gleðilegt Kvennahlaup! 

 

Höfundar:

  

Arna Hauksdóttir og Unnur Anna Valdimarsdóttir

Prófessorar við læknadeild Háskóla Íslands.

 

Greinin birtist í Fréttablaðinu 31. maí 2018