Brjóstastækkun getur komið fram í bara öðru brjóstinu eða báðum og stundum er hún mismikil milli brjósta. Þetta er yfirleitt hættulaust ástand og ekki er ástæða til inngripa en getur stundum fylgt óþægindi eða sársauki og tilfinningaleg vanlíðan vegna breyttrar líkamsmyndar. Oft minnka brjóstin aftur án inngripa en stundum eru notuð lyf eða aðgerð til að minnka brjóstvefinn.
Inndregin geirvarta,ójafna í húð eða mjólkurmyndun er ekki eðlileg og ber að leita til læknis með slík einkenni.
Brjóstamyndun hjá karlmönnum orsakast af ójafnvægi á hlutfalli testósteróna og estrógenhormóna í líkamanum. Ójafnvægi verður vegna minni testósterónframleiðslu eða truflun á virkni testósteróna eða vegna aukinnar estrógenframleiðslu. Nokkrir þættir geta haft þessi áhrif á hormónajafnvægið.
Það sem brjóstvefur er að mestu fituvefur getur hjálpað að breyta matarræði og draga úr sykur og fituneyslu. Sumum hefur tekist að minnka brjóstin með sértækum æfingum og gott að fá ráð hjá þjálfurum hvaða æfingar er bestar til þess.
Stundum er fituvefur eða kirtlar fjarlægðir með skurðaðgerð. Annars vegar með fitusogi og er þá gerður lítill skurður hliðlægt á brjóstkassa. Ef kirtilvefurinn er mjög þéttur í sér og erfitt að ná til hans með sogi , þarf að skera og fjarlægja hann þannig. Þá er skorði við geirvörtu.
Heimildir
Gynecomastia Treatment – The Best Options To Get Rid Of Gyno
http://www.mayoclinic.org/diseases-conditions/gynecomastia/basics/definition/con-20028710
http://www.webmd.com/men/features/male-breast-enlargement-gynecomastia