Fara í efni

Bleika Slaufan - Um átakið

Aukin áhersla á stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
Bleika Slaufan - Um átakið

Aukin áhersla á stuðning, fræðslu og ráðgjöf.

Líkt og undanfarin 10 ár tileinkar Krabbameinsfélag Íslands októbermánuð baráttu gegn krabbameini hjá konum. Söfnunarfé Bleiku slaufunnar í ár rennur til Ráðgjafarþjónustu félagsins með það að markmiði að efla stuðning, fræðslu og ráðgjöf til einstaklinga um allt land sem greinast með krabbamein og aðstandenda þeirra. 

Krabbamein snertir líf flestra

Í nýrri könnun Krabbameinsfélagsins meðal 1.500 einstaklinga á aldrinum 18-75 ára* kom fram að rúmlega helmingur átti náinn ættingja sem greinst hafði með krabbamein og enn fleiri þekktu einhvern persónulega. Þá höfðu fimm prósent sjálf greinst með sjúkdóminn. 

Þriðji hver einstaklingur greinist með krabbamein einhvern tíma á lífsleiðinni og afar mikilvægt er að þeir og aðstandendur þeirra geti gengið að áreiðanlegri ráðgjöf og stuðningi í veikindunum og í kjölfar þeirra. 

Mun fleiri lifa en áður

Sífellt betur tekst að greina krabbamein tímanlega, ráða niðurlögum þeirra og halda sjúkdómunum í skefjum. Nú er svo komið að um 70% þeirra sem greinast með krabbamein eru á lífi fimm árum síðar. Í dag eru rúmlega 14.000 þúsund einstaklingar á lífi sem greinst hafa með krabbamein og þeim fer fjölgandi. Árið 1976 var talan hins vegar tæplega 2.300. Áætlað er að árið 2026 verði fjöldinn um 18.300. Þessi jákvæða þróun hefur í för með sér ört vaxandi þörf fyrir þjónustu og stuðning við þá sem hafa greinst og aðstandendur þeirra, bæði meðan á veikindum stendur og þegar þau eru yfirstaðin. 

Í könnuninni kom meðal annars fram:

  • Almennt töldu 80% svarenda að stuðningur vegna réttindamála þeirra sem greinst höfðu með krabbamein væri ófullnægjandi, en næstum 90% þeirra sem sjálfir höfðu greinst voru þeirrar skoðunar.

  • Alls töldu 80% að sálrænum einkennum væri ekki sinnt nægilega vel og 70% sem greinst höfðu með krabbamein sjálfir voru sömu skoðunar.

  • Stuðningur við aðstandendur á meðan meðferð stóð var talinn ófullnægjandi af um það bil 70% þátttakenda og 60% sem höfðu greinst með krabbamein voru sömu skoðunar.

  • Þegar svör aðstandenda krabbameinssjúklinga voru skoðuð sérstaklega kom fram að 70% töldu stuðninginn ófullnægjandi.

  • Enn stærra hlutfall bæði aðstandenda og þeirra sem höfðu greinst með krabbamein sem taldi vanta upp á stuðning að meðferð lokinni. 

Það er áfall að greinast með krabbamein, bæði fyrir þann sem greinist, en ekki síður fjölskyldu og aðstandendur. Veikindaferlið tekur oft mikið á, á margan og ólíkan hátt og verkefninu er ekki endilega lokið þó sjúkdómurinn hafi læknast. Við höfum ítrekað séð hversu mikilvægt það er að geta gengið að áreiðanlegum upplýsingum, stuðningi og faglegri aðstoð í slíkum aðstæðum. Þess vegna skiptir miklu máli að við eflum þennan hluta starfsemi okkar.

- Halla Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Íslands

Ráðgjafarþjónusta í 10 ár fólki að kostnaðarlausu

Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins er boðið upp á þjónustu fagaðila án endurgjalds. Hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjöf og sálfræðiþjónusta er í boði alla virka daga  og boðið er upp á viðtöl og einstaklingsráðgjöf, símaráðgjöf, slökun, fyrirlestra auk starfsemi stuðningshópa félagsins.  Einnig er fjöldi námskeiða og fyrirlestra í boði sem hafa að markmiði að mæta þörfum þeirra sem til þjónustunnar leita.