Fara í efni

Bakvandamál og líkamsstaða

Allir sem koma í sjúkraþjálfun vegna bakvandamála ganga í gegnum nákvæma skoðun. Þar er líkamstaðan greind, auk þess sem hreyfanleiki hryggsúlu, lengd, styrkur og þol vöðva er metið.
Bakvandamál og líkamsstaða

Allir sem koma í sjúkraþjálfun vegna bakvandamála ganga í gegnum nákvæma skoðun. Þar er líkamstaðan greind, auk þess sem hreyfanleiki hryggsúlu, lengd, styrkur og þol vöðva er metið.

Þeir sem koma með tilvísun eftir skoðun hjá lækni fara einnig í þessa ítarlegu skoðun. Þessu til viðbótar eru ýmis sérpróf framkvæmd og nákvæm sjúkrasaga er tekin til að fá sem bestu heildar mynd af einkennunum.

Rót vandans

Líkamsstaða og líkamsbeiting er lykilatriði þegar kemur að bakvandamálum. Það er ekki nóg að laga einkennin í þetta sinn heldur þarf að finna út hvað það er sem veldur vandamálinu, er það líkamstaðan, vinnuaðstaðan, líkamsbeitingin, þjálfunarleysi eða of stuttir vöðvar? Er það mögulega meðfætt einkenni eins og mislangir fætur? Næsta skref er að vinna í þeim þætti eða þáttum og kenna viðkomandi að draga úr álaginu á bakið til langframa.

Oft þegar fólk kemur til sjúkraþjálfara er skaðinn þegar skeður. Þá þarf að kenna fólki að beita sér rétt og minnka álagið á hrygginn til að koma í veg fyrir að það fái einkenni aftur. Stundum er ekki hægt að laga sjálfan skaðann en það að byggja upp styrk og stöðugleika í baki, síðum og kviðvöðvum heldur fólki oft frá verkjum og þannig að það geti lifað nánast eðlilegu lífi.

Það hvernig við stöndum, sitjum, beitum okkur og hvílum okkur skiptir gríðarlega miklu máli. Oft hefur fólki aldrei verið kennt þetta . . . LESA MEIRA

Af vef gaski.is