Fara í efni

Áfallastreituröskun í kjölfar hjartaáfalls

Að greinast með eða fá alvarlegan og kannski lífshættulegan sjúkdóm er mikið áfall.
Áfallastreituröskun í kjölfar hjartaáfalls

Að greinast með eða fá alvarlegan og kannski lífshættulegan sjúkdóm er mikið áfall.

Tilverunni er skyndilega snúið á hvolf og eins og hendi sé veifað er allt breytt með ófyrirséðum afleiðingum um ókomna framtíð.

Mjöll Jónsdóttir sálfræðingur hjá Sálfræðingum Höfðabakka hefur kynnt sér málið.

Áfallastreituröskun er kvíðaröskun sem fólk getur þróað með sér eftir alvarlegt áfall þar sem lífi eða velferð viðkomandi eða einhvers annars er ógnað. Það sem einkennir þessa röskun er að fólk endurupplifir atburðinn á einn eða annað hátt, fær martraðir eða ágengar minningar sem eru svo ljóslifandi í huganum að það er eins og atburðurinn sé að gerast aftur. Fólki líður mjög illa þegar það er á einhvern hátt minnt á atburðinn og forðast allt sem getur virkjað minningarnar. Andlegri líðan hrakar, hugsun verður neikvæðari og lundin þyngri, líkamlega spennan verður meiri, svefn raskast, fólk verður meira pirrað, á varðbergi og einbeitning verður erfið.

Áfallastreituröskun er vel þekkt t.d. hjá fólki sem hefur lent í líkamsárásum, kynferðisofbeldi, náttúruhamförum og stríði. Minna hefur þó verið rannsakað um algengi þessarar röskunar hjá sjúklingum. Nokkrar rannsóknir hafa þó verið gerðar og hafa niðurstöður þeirra verið mismunandi eftir því hvaða skilgreiningum og viðmiðum hefur verið unnið út frá.

Fyrir nokkrum misserum var birt rannsókn, sem finna má hér sem dró saman niðurstöður mismunandi rannsókna til að reyna að álykta um algengi áfallastreituröskunar hjá sjúklingum sem hafa fengið heila- eða hjartaáfall. Niðurstöðurnar eru sláandi enda röskunin mjög lamandi fyrir líf og lífsgæði fólks.

Fjórðungur þeirra sem fá heila- eða hjartaáfall þjást af áfallastreituröskun á fyrsta árinu eftir veikindin.

Rannsóknin, sem framkvæmd var af Columbia University Medical Center, leiddi einnig í ljós að það að þjást af áfallastreituröskun geti einnig aukið hættu sjúklingsins á því að fá aftur hjartaáfall eða deyja innan þriggja ára frá upphaflegu veikindunum.

Með það í huga hversu mikið hvert áfall ógnar heilsu og . . . LESA MEIRA