Fara í efni

Að halda sér í kjörþyngd

Baráttan við aukakílóin virðist engan endi ætla að taka.
Að halda sér í kjörþyngd

Baráttan við aukakílóin virðist engan endi ætla að taka. Eftir því sem við eldumst hættir okkur til að þyngjast.  „Það eru tvær ástæður fyrir því að okkur hættir til að fitna þegar við eldumst, vöðvarýrnun og hreyfingarleysi sérstaklega eftir að 50 aldri er náð,“ segir Caroline Apovian vigtarráðgjafi hjá Bostun University Medical Center, á vefnum aarp.org,

Lifðu núna stytti og endursagði.  Caroline segir að vöðvarýrnun og hreyfingarleysi valdi því að það sé erfiðara að ná af sér aukakílóunum þegar þau eru komin á annað borð. Fólk missi 5 til 10 prósent af vöðvamassanum á hverjum áratug eftir 50 ára aldur. Þetta hefur þau áhrif að grunnbrennsla líkamans minnkar um tvö til þrjú prósent við hvern áratug sem við lifum eftir 50 ára aldur. Fólk þyngist því, þó það borði nákvæmlega jafn mikið og það gerði þegar það var fertugt.

Það eru ýmsar ástæður fyrir því að fólk hreyfir sig minna þegar það eldist, börnin eru farin að heiman, fólk fær gigt og líkaminn byrjar að gefa sig. Caroline segir að ef við notum ekki vöðvana rýrni þeir smátt og smátt. Hún segir að það sé þó hægt að snúa þróuninni við og hægja verulega á vöðvarýrnuninni. Bæði með réttu mataræði og með því að hreyfa sig nóg.

„Prótein hjálpar til að viðhalda vöðvamassa og byggja hann upp,“ segir Caroline. Hún segir að 30 til 40 prósent af daglegri kalóríuinntöku ætti að koma frá próteinum, til dæmis mögru kjöti eða fiski. Til samanburðar má geta þess að 16 prósent af kalóríuinntöku venjulegs Bandaríkjamanns kemur úr próteinum. Caroline segir að fólk eigi ekki að neyta allra próteinanna í einni máltíð heldur borða þau jafnt og þétt yfir daginn.

Caroline segir að öll hreyfing sé til bóta en það sé þó mikilvægt að stunda styrktaræfingar tvisvar í viku að lágmarki það viðhaldi vöðvunum og stuðli að því að fólk léttist. Samkvæmt rannsókn sem gerð var á fólki á sjötugsaldri og átti það sameiginlegt að vera í yfirvigt en í megrun, léttust þeir marktækt meira sem lyftu lóðum á meðan á rannsókninni stóð. Bara það að æfa með léttum handlóðum jók vöðvamassann til muna. „Fólk þarf alls ekki að gera svo mikið til að bæta sig,“ segir Caroline.

Rannsóknir sýna að þeir sem eru í yfirvigt eða of feitir sofa . . . LESA MEIRA