Fara í efni

Tilnefningar óskast til Hvatningarverðlauna ÖBÍ

Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalag Íslands verða veitt í tíunda sinn laugardaginn 3. desember næstkomandi, á alþjóðadegi fatlaðs fólks.
Frá afhendingu verðlaunanna 2015. Mynd: Silja Rut
Frá afhendingu verðlaunanna 2015. Mynd: Silja Rut

Hvatningarverðlaun Öryrkjabandalag Íslands verða veitt í tíunda sinn laugardaginn 3. desember næstkomandi, á alþjóðadegi fatlaðs fólks.

Markmið verðlaunanna er að skapa jákvæða ímynd fyrir fatlað fólk og vekja athygli á þeim sem þykja skara fram úr og endurspegla nútímalegar áherslur um jafnrétti, sjálfstætt líf og þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu.

 

 

 

Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum:

  • Flokki einstaklinga.
  • Flokki fyrirtækja/stofnana.
  • Flokki umfjöllunar/kynningar.

Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, er verndari verðlaunanna.

Tilnefningar óskast fyrir lok dags 15. september.

Tilnefningar má senda með rafrænu eyðublaði á heimasíðu ÖBÍ á slóðinni:

http://www.obi.is/is/um-obi/hvatningarverdlaun-obi/hvatningarverdlaun-eydublad

Einnig má senda tilnefningar í bréfpósti til:

ÖBÍ, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.

Verðlaunahafar fyrri ára

Tilnefningar fyrri ára