Fara í efni

RAW Randalína - Birnumolar

Til að gera langa sögu stutta þá smakkaðist þessi kaka ljómandi vel í kvöldsólinni
Girnilegt frá Birnu Varðar
Girnilegt frá Birnu Varðar

Það er eitthvað svo huggulegt við að eiga góða hráköku í frystinum. Í gærkvöldi fór ég með tveimur góðum vinkonum í kvöldgöngu á Úlfarsfell. Þar sem við erum allar í næringarfræði í HÍ þarf alltaf að vera eitthvað nærandi og matarkyns í okkar hittingum  Til að gera langa sögu stutta þá smakkaðist þessi kaka ljómandi vel í kvöldsólinni!

 

 

 

Botn

  • 50 g pekanhnetur
  • 50 g möndlur
  • 75 g ósaltaðar jarðhnetur
  • 1/2 - 1 msk repjuolía (til mýkingar - prófið ykkur áfram)
  • 1 msk fínt hnetusmjör
  • 1 msk hunang
  • 1 tsk vanilludropar

 

Millilag

  • 100 g möndlur
  • 2 msk hreint kakóduft
  • 10 ferskar döðlur
  • 1 lúka kókosmjöl
  • 1 tsk hunang

 

Toppur - Döðlukaramella

  • 12 ferskar döðlur
  • 1/2 tsk vanilludropar
  • Salt á hnífsoddi
  • 2-3 msk vatn

 

Annað

Gott getur verið að stinga heilum jarðhnetum á milli laga og ofan á herlegheitin. Gefur smá extra bit!

 

Aðferð

1)  Setjið pekanhnetur, möndlur og jarðhnetur í matvinnsluvél mixið vel. Bætið þá við olíu, hunangi og vanilludropum. Vinnið allt vel saman eða þar til þið eruð komin með blöndu sem auðvelt er að þrýsta í form. 

2) Þrýstið öllu úr lið 1 jafnt niður í form (ég notaði 25cm hring) og geymið í frysti á meðan þið útbúið millilagið

3) Malið möndlur í matvinnsluvél og blandið kakóinu saman við. Bætið döðlum, kókosmjöli og hunangi við og vinnið allt vel saman. Takið formið úr frysti og jafnið þetta lag yfir botninn. Geymið í frysti meðan þið útbúið toppinn.

4) Sjóðið upp á döðlunum í potti. Vinnið döðlurnar í matvinnsluvél ásamt vanillu, agnarögn af salti og vatni. Dreifið þunnu laginu yfir kökuna.

5) Geymið í kæli/frysti og njótið þegar löngunin brýst fram - já eða þegar þið farið í fjallgöngur með góðum vinum.

Birt í samstarfi við