Tilgangur síðunnar er að miðla hagnýtum upplýsingum um öryggi matvæla, hættur og innkallanir, meðferð matvæla, vörusvik, merkingar og rétt neytenda til upplýsinga. Á síðunni geta neytendur einnig lagt sitt af mörkum í þágu matvælaöryggis með því að tilkynna um vanmerkt eða varasöm matvæli á markaði til Matvælastofnunar í gegnum ábendingakerfi stofnunarinnar.
Síðan býður upp á að hafa samband við Matvælastofnun í gegnum ábendingakerfi stofnunarinnar. Það er gert til að tryggja eftirfylgni og sér gæðastjóri til þess að öllum ábendingum sé lokið. Það er einnig gert til að halda yfirlit yfir ábendingar, fyrirspurnir og kvartanir til Matvælastofnunar. Fjöldi ábendinga, fyrirspurna og kvartana er tekinn saman og birtur í ársskýrslum Matvælastofnunar, ásamt efni þeirra.