Fara í efni

11 sannreynd ráð til að auka brennslu - Stelpa.is

Þegar kemur að því að skafa smjörið af sér eru ákveðin grunngildi sem virka og vinna annaðhvort með okkur eða á móti okkur.
Skemmtileg grein frá Stelpa.is
Skemmtileg grein frá Stelpa.is

Það er ýmislegt sagt varðandi fitubrennslu og þó okkur langi hrikalega til að nýjasta æðið virki þá eru margar staðhæfingar algjört BS

Þegar kemur að því að skafa smjörið af sér eru ákveðin grunngildi sem virka og vinna annaðhvort með okkur eða á móti okkur.

 

 

 

11 sannreynd ráð til að auka brennslu

1. Svefn

Sannreynt er að svefnleysi hægir verulega á brennslu líkamans og kveikir, í þokkabót, á kolvetnasýki sem erfitt er að standast. Svefnleysi er eiginlega tvöfaldur mínus sem verður ekki plús.

2. Grænt te

Grænt te er fullt af andoxunarefnum og hitaeiningasnautt og því kjörinn drykkur í niðurskurði en rannsóknir sýna að grænt te eykur líka brennslu. Tvöfaldur plús.

3. Bættu í kraftinn á æfingum

Hægt og mjúklega er ekki alltaf málið en sýnt hefur verið fram á að svokölluð Interval þjálfun (HIIT), þar sem hraði er keyrður upp með reglulegu millibili, er mjög áhrifarík fitubrennsla og skapar þennan eftirsóknaverða eftirbruna (epoc), þar sem líkaminn heldur áfram að brenna eftir æfinguna.

4. Ekki sleppa morgunmat

Umræður um þetta hafa verið heitar í gegnum tíðina en fleiri en færri rannsóknir sýna fram á að morgunmatur leiði til hærri brennslu yfir daginn og þeir sem sleppa morgunmat verða ennþá svangari þegar matarlystin kemur og borða meira á heildina litið yfir daginn. Ef þú átt erfitt með þetta þá er um að gera að taka nesti með og borða fljótlega, í stað þess að sleppa morgunmatnum alveg.

5. Rífðu í lóðin

Aukinn vöðvamassi þýðir aukin brennsla í hvíld. Þú þarft ekkert að verða rosaleg og gætir jafnvel tekið power yoga sem gefur jafnan vöðvamassa, en smá gerir alveg helling fyrir aukna brennslu.

6. Drekktu vatn

Of lítið vatn hægir á öllu þó of mikið geri lítið gagn. Kíktu á greinina „hversu mikið vatn þarft þú að drekka“ og brenndu 100 hitaeiningum til viðbótar með að hafa vatnið ískalt.

7. Kryddaðu

Cayenne pipar eykur brennslu en upplýsingar um hversu mikið eru misvísandi. Á einum stað var sagt að hálf teskeið brenni 10 hitaeiningum og á öðrum að cayenne pipar í hylkjaformi auki brennslu um 25% en athugaðu að því fylgir hjartsláttur og hugsanlegar aukaverkanir.

8. Bættu þolþjálfun við

Reyndu að bæta hreyfingu og þolþjálfun við, hvar og hvenær sem þú getur. Ein rannsókn sýndi fram á að 45 mínútna hjólatúr jók brennsluna í 12 tíma á eftir.

9. Borðaðu gáfulega

Ákveðnar fæðutegundir eins og túnfiskur og greipávöxtur auka brennslu svo veldu vel hvað þú borðar.

10. Fáðu þér kaffibolla

Koffín eykur fitubrennslu í allt að 3 klst. en of mikið snýst í andhverfu sína svo hafðu það í hófi.

11. Hlæðu helling

Vísindamenn hafa fundið að bara 10 mínútna hlátur nær að auka brennsluna svo það er spurning um að fórna GOT fyrir SNL?