Fara í efni

OPIÐ MÁLÞING 28. FEBRÚAR - DAGUR SJALDGÆFRA SJÚKDÓMA

OPIÐ MÁLÞING 28. FEBRÚAR - DAGUR SJALDGÆFRA SJÚKDÓMA

Alþjóðlegur dagur um sjaldgæfa sjúkdóma er 28. febrúar. Þann dag standa Félagið Einstök börn og Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fyrir málþingi á Grand Hótel Reykjavík kl. 13:00 - 16:00. 

Allir velkomnir, þátttaka ókeypis. 

Þema dagsins í ár er samþætting heilbrigðis- og félagsþjónustu (e. Bridging health and social care) en það skiptir gríðarlega miklu máli fyrir einstaklinga með sjaldgæfa sjúkdóma. Á málþinginu verður fjallað um börn með sjaldgæfa sjúkdóma og fjölskyldur þeirra.

Aðal fyrirlesari málþingsins verður Birthe Byskov Holm. Hún er foreldri og á son með sjaldgæfan sjúkdóm. Birthe er lögfræðimenntuð, ein af stofnendum Sjæeldne Diagnoser félagsins í Danmörku og er starfandi formaður samtakanna. Birthe starfar einnig í stjórn evrópskra sjúklingasamtaka, European Alliance of Rare Disease - EURODIS.

Hér er tengill á alþjóðlega heimasíðu dagsins.

Mikilvægt er að skrá þátttöku á málþingið.

Dagskrá málþingsins.