Fara í efni

HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT - 22. og 23. nóvember

Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi.
HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT - 22. og 23. nóvember

Námskeið í Menntaskólanum í Kópavogi.

Astma- og ofnæmisfélag Íslands (AO) stendur fyrir enn einu af sínum vinsælu námskeiðum um eldun ofnæmisfæðis í Menntaskólanum í Kópavogi dagana 22. og 23. nóvember.

Fyrri daginn er bóklegt námskeið sem  stendur frá kl. 13-15:30 en seinni daginn er fyrirhugað að byrja kl. 13, en einnig má ræða hvort að tímasetningin frá kl. 15:00-18:30 hentar betur, verður það ákveðið þegar ljóst er með skráningu og óskir meirihluta þátttakenda.

Markmiðin

Meginmarkmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þess og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Það getur verið flókið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi. Ljóst er að næringarefni geta orðið af skornum skammti þegar fæðuofnæmi er til staðar og felst fræðslan m.a. í því að fara yfir hvaða fæðutegundir geta komið í staðinn fyrir mjöl, korn, mjólk, egg, fisk, hnetur o.fl. til að fullnægja orku- og næringarlegum þörfum og skapa fjölbreytni í fæðu barna og fullorðinna. Verklegi hlutinn felur í sér eldun og bakstur ýmissa rétta og útfærsla uppskrifta á mismunandi máta eftir því hvaða ofnæmi er um að ræða.

Markhópur

Matreiðslumenn í eldhúsum, matráðir í eldhúsum í leik- og grunnskóla, heimilisfræðikennarar,starfsmenn og stjórnendur í skólum, foreldrar og forráðamenn barna og ungmenna með fæðuofnæmi, starfsfólk veitingastaða og hótela og aðrir sem áhuga hafa á málefninu.

Bóklegt          2 ½ - 3 klst með stuttu kaffihléi.

*Tryggjum næga orku og góða næringu með hollum, góðum og öruggum mat         Fríða Rún                   

* Er hægt að tryggja öryggi þeirra sem eru með fæðuofnæmi? Hver er okkar réttur?

                                                                                                                                             Selma

Verklegt         3 ½ - 4 klst

*Eldum góðan og næringarríkan mat fyrir alla, líka þá sem eru með fæðuofnæmi og óþol.                                                                                                                                              Margrét

Umræður og smakk

Kennarar
Selma Árnadóttir, varaformaður AO og móðir ofnæmisbarns.

Fríða Rún Þórðardóttir, næringarfræðingur og næringarráðgjafi Eldhúsi Landspítala, formaður AO.

Margrét S. Sigbjörnsdóttir,  kennari og umsjónaraðili með matartæknanemum við Menntaskólann í Kópavogi.

Kennsla fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi og er gengið inn um innganginn sem er vinstra megin í horninu þegar staðið er á bílastæðinu við framhlið hússins. Þar er tekið á móti þátttakendum.

Skráning fer fram með því að senda póst á ao@ao.is með upplýsingum um fullt nafn, kennitölu og starfsstöð og ósk um tímasetningu á verklegum hluta, annað hvort kl. 13:00 eða 15:00 í verklegum hluta þann 23. nóvember. Athugaið að það er mögulegt að taka aðeins annan daginn, þá ber að taka það fram við skráningu en hálft námskeið kostar 10.000 kr.

Skráningarfrestur er til og með 20.11.2017

Námskeiðsgjald er 15.000 kr og er hráefnisgjald og hressing innifalin. Greiða þarf 5.000 kr. staðfestingargjald við skráningu:

Bankareikningur: 0113-05-570194

Kennitala: 5904740109

Senda kvittun á:  ao@ao.is

Vinsamlega greiðið aðeins eitt gjald í hverri færslu þannig að hægt sé að sjá fyrir hvern er verið að greiða eða sendið póst á  ao@ao.is og tilgreinið nöfn þess sem greitt er fyrir.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Fríða Rún Þórðardóttir, Formaður AO                    

frida@heilsutorg.is    

898-8798