Fara í efni

Hjálpartæki daglegs lífs - málþing miðvikudaginn 27. september n.k

Hjálpartæki daglegs lífs - málþing miðvikudaginn 27. september n.k

Málefnahópur ÖBÍ um heilbrigðismál  býður til málþings um um framboð, úrval og þjónustu vegna hjálpartækja á Íslandi.

Fólk notar hjálpartæki til að auðvelda daglegt líf. Fyrir marga eru þau nauðsynleg og sumum jafnvel lífsnauðsynleg. Hjálpartæki eru notendum þeirra kostnaðarsöm og því eru veittir opinberir styrkir til niðurgreiðslu, en þó aðeins að uppfylltum þröngum skilyrðum.

Oft er ekki nóg að hafa hjálpartækið því ef það bilar getur verið erfitt að fá gert við það. Þá er notandi oft bundinn heima við eða í versta falli rúmi eða stól á meðan viðgerð stendur.

Íslensk löggjöf verður skoðuð með tilliti til Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF) og kallað eftir opinberri stefnumótun í málaflokknum, auk þess sem notendur segja sína sögu.

Tími: miðvikudagurinn, 27. september 2017, kl. 16:00 - 19:00

Staður: Hilton Reykjavík Nordica

Skráning: heimasíða ÖBÍ, www.obi.is

*Táknmáls- og rittúlkun í boði

Dagskrá málþingsins:

16:00   Málþingið sett.Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalags Íslands

16:10   Ávarp. Óttarr Proppé, heilbrigðisráðherra.

16:20   Nauðsyn eða hvað? Emil Thóroddsen, formaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál

16:40   Lagareglur um hjálpartæki í íslenskri löggjöf með hliðsjón af Samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks Daníel Ísebarn Ágústsson hrl., lögmaður

17:00   Aðstöðumunur eftir búsetu og sjúkdómum Guðrún Sonja Kristinsdóttir, iðjuþjálfi

17:20   Kaffihlé

17:40   Staða og stefna í hjálpartækjamálum hjá Sjúkratryggingum Íslands Björk Pálsdóttir, sviðstjóri á Sjúkratryggingum Íslands

18:00   Margþættur vandi heyrnarskerts fólks Hjörtur Heiðar Jónsson formaður Heyrnarhjálpar

18:20   Tæki til hjálpar – upplifun á þjónustu varðandi hjálpartæki fyrir ungan mann á Íslandi og Danmörku Elfa Dögg S. Leifsdóttir, móðir

18:40   Samantekt. Nichole Leigh Mosty, formaður velferðarnefndar Alþingis.

19:00   Málþingi slitið.